JCI Ísland mun að vanda verða með glæsilega dagskrá á menningarnótt.  Allir eru hvattir til að kíkja við í húsinu og njóta frábærra atriða og kynna sér í leiðinni starfsemi JCI á Íslandi og dagskrá haustsins.

Fyrrverandi félagar eru sérstaklega hvattir til að kíkja við og kynna sér glæsilega afmælisdagskrá hreyfingarinnar.

Á menningarnótt verða  Tónleikar og útidansleikur fram á kvöld, heyra má í karlinum á kassanum og sækja örnámskeið.

Margar frábærar hljómsveitir munu sjá til þess að Hellusundið iði af lífi. Þeirra á meðal eru:
Hljómsveitin Sturla kl 16-16:30, Þrjár raddir og Beatur kl 18, T.N.T. (AC/DC Tribute band) kl 19:30,
Dalton bræður kl 20-21 og Hljómsveitin Bermuda með útiball frá kl 21-22:30