Fimmtudaginn 13. maí (uppstigningardag) er fyrirhuguð hellaskoðunarferð með leiðsögumanni í Leiðarenda á Reykjanesskaga.

Allir félagsmenn velkomnir, ásamt vinum og ættingjum. Áætlað er að hittast fyrir framan JCI húsið í hellusundi kl. 10:45, en þaðan verður farið með rútu.

Eftir hellaskoðunina munum við grilla saman í Heiðmörk. Þátttakendur taki með sér það sem þeir kjósa að snæða og drekka.

Fatnaður: Hlýr útivistarfatnaður, vettlingar, húfa, ásamt hlífðarfatnaði og góðum skóm.

Kostnaður: 3000,- kr. á mann (innifalið er rútuferð, leiðsögumaður, hellabúnaður og kol á grillið). Vinsamlega hafa pening tilbúinn til að borga á staðnum.  Skráning hjá emmarun1@gmail.com.   Nánari upplýsingar á www.jcireykjavik.is