JCI heldur Evrópuþing einu sinni á ári, en að þessu sinni er Evrópuþingið haldið í Ungverjalandi, Búddapest. JCI Ísland sendi sendinefnd á þingið, meðal annars er Kjartan Hansson með í för en hann mun keppa fyrir Íslands hönd í ræðukeppni einstaklinga, en undanfarið hefur Kjartan lagt mikla vinnu í að undirbúa keppnina.

Landsforseti JCI er einnig með í för, en á meðan hann er í burtu er Kristín Guðmundsdóttir, varalandsforseti, handhafi landsforsetavalds.