Þú getur ennþá styrkt en formlegri sölu á Jólakveðju JCI
hefur nú lokið.

Jólakveðjurnar eru sendar á milli jóla og nýárs héðan í frá og lokast endanlega fyrir sölu 28/12/2019

1. Þú kaupir kveðju

2. Þú styrkir gott málefni

3. Þú færð jólakveðju senda

Kveðjan er stutt myndband sem verður sent á tölvupóstinn sem þið skráið.

Þátttakendur í Jólakveðju JCI eru

GDRN – Ingileif Friðriks – Hjálmar Örn – Þór Jakobs – Bára Halldórs

GDRN styður

Blátt áfram

Blátt áfram starfar fyrst og fremst að fyrsta stigs forvörnum. Með fyrsta stigs forvörnum er átt við fræðslu til fullorðinna, fjölskyldna og samfélagsins alls. Í fræðslunni er hvatning til að taka nauðsynleg skref til að vernda börn áður en þau verða fyrir ofbeldi. Við bjóðum uppá stuðning, upplýsingar og faglega ráðgjöf til að vernda börn og gera umhverfi okkar öruggara. Síðan 2004 höfum við gert grein fyrir, endurskoðað og bent á áhrifaríkar aðferðir fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið til að taka þau skref sem þarf til að vernda börn frá því að verða fyrir kynferðisofbeldi.

Hjálmar Örn styður

Einstök börn

“Sem foreldri barns með sjaldgæfan sjúkdóm upplifum við eins og sjálfsagt margir aðrir að maður stendur svolítið einn og veit ekki
alltaf hvað maður á að gera. Því er gott að hafa tengingar út fyrir landssteinana hvort sem um er að tæða tengsl við sérfræðinga og/eða foreldra barna með sama sjúkdóm. En það að þekkja aðra foreldra er ekki síður mikilvægt þar sem fáir einstaklingar eru með TSC á Íslandi.”

Ingileif Friðriksdóttir styður

Barnaspítali Hringsins

Á Barnaspítalanum er veitt sérhæfð, fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri. Í allri þjónustu er áhersla lögð á að greina þarfir og auka vellíðan skjólstæðinga

Bára Halldórsdóttir styður

Stelpur rokka!

Stelpur rokka! eru sjálfboðaliðarekin samtök sem starfa af femínískri hugsjón við að efla ungar stelpur (sís og trans), trans stráka, kynsegin og intersex ungmennni í gegnum tónlistarsköpun og jafnréttisstarf. Kjarninn í starfinu eru rokksumarbúðirnar, þar sem þátttakendur læra á hljóðfæri, spila saman í hljómsveit, kynnast farsælum tónlistarfólki, fræðast um ýmsar hliðar tónlistar og jafnréttissbaráttu og koma fram á lokatónleikum fyrir framan fullan sal vina og fjölskyldu.

Þór Jakobsson styður

Blindrafélagið

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, er samfélagslegt afl – mannréttindasamtök – sem berst fyrir því að blindir og sjónskertir einstaklingar geti lifað sjálfstæðu, innihaldsríku og ábyrgu lífi, og að þeim sé tryggður jafn réttur og jöfn tækifæri til ábyrgrar, virkrar og viðurkenndrar þátttöku í öllum þáttum samfélagsins.

Jólakveðja JCI


Einnig er hægt að leggja beint inn á reikning JCI Reykjavík

Kt. 630683-1149 | Reikningur 0516-04-760456

Látið emailið sem þið viljið fá kveðjuna senda á fylgja með í athugasemd

Fyrir kvittun vinsamnlegast sendið beiðni á jci@jci.is

[ecwid widgets=”productbrowser” default_category_id=”0″ default_product_id=”0″]

Þú færð kveðjuna senda á póstfangið sem þú fyllir inn þegar þú verslar!

Samstarfsaðilar verkefnisins

Kiwanis hreyfingin

Kiwanis er alþjóðleg þjónustuhreyfing manna og kvenna, sem hafa áhuga á að taka virkan þátt í að bæta samfélagið, og láta gott af sér leiða. Í samstarfi fá þessir aðilar áorkað því sem einstaklingar geta ekki einir. Frjálst samstarf gerir þeim kleift að vinna að alþjóðlegum verkefnum innan hinnar alþjóðlegu hreyfingar. Þeir vinna einnig að umbótum á landsvísu. Ekki síst vinna þeir að mannúðar og framfaramálum sem horfa til heilla fyrir bæjarfélag þeirra, sem opinberir aðilar annað hvort vilja ekki eða geta ekki sinnt. Þannig verða þeir leiðandi aðilar í sínu byggðarlagi.

KORTA

Korta hefur styrkt JCI verkefni áður með því að bjóða greiðsluhirðu og tengingu við vefverslun frítt.

Við þökkum KORTA innilega fyrir stuðningin.

Sérstakar þakkir til:

Gunnar Þór Sigurjónsson – Upptökur

Elín Hanna – Förðun

Sölvi Smárason – Tökubúnaður

JCI Félagar

GDRN

Þór Jakobsson

Ingileif Friðriksdóttir

Bára Halldórsdóttir

Hjálmar Örn