Reglugerðir

REGLUGERÐIR JCI
I.REGLUGERÐ UM AÐILD AÐ HREYFINGUNNI
í samræmi við 3. grein laga um aðild

1. grein
Þegar landsstjórn hefur staðfest aðild nýs aðildarfélags veitir hún því sérstakt staðfestingarskjal, áritað nöfnum stofnfélaga, undirritað af landsforseta og forseta stofnfélags.
2. grein
Fullgildir og löglegir félagar teljast þeir einstaklingar sem:
a) Eru á aldrinum 18-40 ára, embættismenn JCI Íslands skulu þó ljúka því ári sem þeir eru kosnir til.
b) Eru skráðir í félagatal aðildarfélags og Junior Chamber Íslands.
c) Greitt hefur verið félagsgjald af samkvæmt 27. grein laga Junior Chamber Íslands og/eða greitt hafa félagsgjald til síns aðildarfélags.
3. grein
Landsstjórn ákveður meðferð mála, sem varða útilokun aðildarfélaga úr hreyfingunni í samráði við lögsögumann. Landsstjórn getur útilokað og tekið af skrá það aðildarfélag sem hvorki hefur haft stjórn né aðra starfsemi síðustu þrjú starfsár og þar að auki ekki greitt til hreyfingarinnar af félögum sínum. Komi fram tillaga að útilokun aðildarfélags sem hefur haft starfsemi á síðustu þremur árum, skal gæta þess að réttur þess aðildarfélags sé hvergi skertur og í þeim tilfellum verði landsþing endanlegur ákvörðunaraðili. Áður en til útilokunar aðildarfélags kemur, skal landsstjórn boða til félagsfundar.

Jenný Jóakimsdóttir
——————————————————————————–

II.REGLUGERÐ UM UMSJÓNARMENN JC ÍSLANDS
í samræmi við 14. grein laga

1. grein
Umsjónarmenn eru formenn nefnda og umsjónarmenn tiltekinna verkefna.

2. grein
Tilgangur
Tilgangur með skipan umsjónarmanna (embættismanna) er að hafa umsjón með og vinna að þeim verkefnum sem þeir eru skipaðir til.

3. grein
Skipan
Landsstjórn skipar umsjónarmenn og nefndarformenn samkvæmt tilnefningum sem henni berast. Berist engar tilnefningar er landsstjórn heimilt að skipa í embætti sbr. 14. gr. laga. Almennt miðast starfstími umsjónarmanna við kjörtímabil viðkomandi landsstjórnar en landsstjórn er þó heimilt að gera undantekningu á þeirri reglu og fer það eftir eðli starfsins/verkefnisins.

4. grein
Starfshættir

1. Sérhver umsjónarmaður hefur eftirlitsmann af hálfu landsstjórnar sem ber ábyrgð á störfum viðkomandi.
2. Umsjónarmenn skulu í upphafi starfsárs fá skipunar- og erindisbréf frá eftirlitsmanni sínum, er kveður á um verkefni þeirra og skyldur.
3. Landsstjórn skal gera starfslýsingu fyrir umsjónarmenn ásamt því að skilgreina skyldur þeirra í skipunar- og erindisbréfi.
4. Umsjónarmaður er ábyrgur fyrir störfum sínum gagnvart viðkomandi eftirlitsmanni og ber að upplýsa hann reglulega og hvenær sem þess er óskað. Öllum umsjónarmönnum er skylt að fá samþykkt verkefni frá landsstjórn áður en hafist er handa við framkvæmd eða aðrar skuldbindingar. Samþykkt landsstjórnar þarf til allra fjárhagslegra skuldbindinga á vegum umsjónarmanns eða nefnda. Séu fjármál tengd verkefninu er umsjónarmönnum/nefndum skylt að skila inn til landsstjórnar fjárhagsáætlun og greiðsluáætlun fyrir verkefnið og er því aðeins heimilt að halda verkefninu áfram hafi landsstjórn (eftirlitsmaður) gefið samþykki sitt skriflega.
5. Umsjónarmenn skulu skila inn til landsstjórnar skriflegum skýrslum og fjárhagslegum uppgjörum svo oft sem landsstjórn óskar þess.
nema með samþykki landsstjórnar.

5. grein
Aðstoð
Umsjónarmenn geta með samþykki eftirlitsmanns, skipað aðstoðarmenn við tiltekin verkefni. Aðstoðarmenn skulu fá erindisbréf og ber viðkomandi umsjónarmaður ábyrgð á störfum þeirra gagnvart eftirlitsmanni sínum. Umsjónarmenn geta kallað sér til ráðuneytis sérhvern félaga innan Junior Chamber Íslands, telji þeir ástæðu til.

Þorsteinn V. Sigurðsson
landsforseti 1997
——————————————————————————–

III.REGLUGERÐ UM SVIÐ TÆKIFÆRA
í samræmi við 28. grein laga

1. grein
Svið einstaklings:
Skal veita félagsmönnum tækifæri til að auka hæfni sína með þjálfunarnámskeiðum, leiðbeinendastörfum og ræðumennsku. Verkefni skulu stuðla að aukinni þáttöku felaganna, gagnkvæmum kynnum og samstöðu þeirra. Helstu verkefni: Námskeiðahald, mælsku og rökræðukeppnir, innlend vinnafélagatengsl, viðurkenningar, félagslíf, fundir, framboð, landsþingsþáttaka og þingboð.

2. grein
Svið viðskipta:
Skal veita félagsmönnum tækifæri til þáttöku í viðskiptum og vekja áhuga fyrirtækja og einstaklinga í atvinnulífinu á Junior Chamber hreyfingunni, veita tækifæri til að öðlast stjórnunarhæfni með stjórnþjálfun og hagnýta reynslu og forystu á öllum þrepum hreyfingarinnar. Helstu verkefni: Viðskiptaklúbbur, viðskiptatengd námskeið og verkefni sem tengja hreyfinguna viðskiptalífinu, skipulag starfsárs, kynnig, félagaöflun, útbreyðsla, almennigstengsl.

3. grein
Svið samfélags:
Skal veita tækifæri til aukins skilnings á viðfangsefnum þjóðfélagsins og/eða samfélagsins og möguleika á að vinna að þeim í JC starfi. Helstu verkefni: Landsverkefni og heimsverkefni ásamt öðrum samfélagsverkefnum (t.d. Menningarnótt), JC dagurinn sem aðildarfélögin halda 10. maí ár hvert og nota til kynningar á hreyfingunni. Verkefni JC dags skal höfða til ákveðinna málefna sem valin eru á 1. framkvæmdastjórnarfundi hverju sinni.
4. grein
Svið alþjóða samstarfs:
Skal veita félagsmönnum tækifæri til að efla kynni og skilning við aðildarfélagslönd Junior Chamber og miðla þekkingu og auka samstarf meðal þjóða. Helstu verkefni: Erlend vinafélagatengsl, heimsóknir og samstarf erlendis, þátttaka í alþjóðlegum þingum, erlend námskeið, alþjóðlegur JC dagur og önnur alþjóðleg verkefni. Alþjóðlegi JC dagurinn er 11. desember ár hvert og skal hann notaður til kynningar á starfi hreyfingarinnar.

Þorsteinn G. Jónsson
landsforseti 2004

——————————————————————————–

IV.REGLUGERÐ UM LEIÐBEINENDARÉTTINDI OG NÁMSKEIÐAHALD
í samræmi við 24. grein laga

1. grein
Réttindi til leiðbeinendastarfa
Matsnefnd sem í eiga sæti tveir fulltrúar landsstjórnar og einn fulltrúi leiðbeinendaráðs fjalla um umsóknir félaga til leiðbeinendastarfa og breytinga á stigum. Umsögn þeirra skal send landsstjórn til staðfestingar. Matsnefndi skal hafa eftirfarandi reglur til viðmiðunar.

2. grein
Stig I. Leiðbeinendanemi
Leiðbeinendanemi þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði til þess að geta sótt um stigahækkun.
a) Hafi a.m.k. 200 stig á JC braut.
b) Hafi setið viðkomandi námskeið.
c) Hafi lokið námskeiði í leiðbeinendatækni eða sambærilegu námskeiði að mati matsnefndar.
d) Hafi setið leiðbeinendanámskeið eða hlotið sambærilega þjálfun hjá IV. stigs leiðbeinanda.
e) Hafi leiðbeint á tveimur námskeiðum og hlotið jákvæða umsögn umsjónarleiðbeinenda.

3. grein
Stig II. Leiðbeinandi
Leiðbeinandi á þessu stigi hefur rétt til að leiðbeina sjálfstætt innan hreyfingarinnar. Hann má leiðbeina á almennum markaði með III. eða IV. stigs leiðbeinanda að fenginni staðfestingu landsstjórnar. Hann þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði til þess að geta sótt um stigahækkun.
a) Hafa leiðbeint á landsvísu þ.e. landsþing, námskeið fyrir stjórnir eða sambærilegt.
b) Hafa lokið alþjóðlega leiðbeinendanámskeiðinu Prime eða sambærilegu námskeiði.
c) Hafa leiðbeint 50 kl.st og geta gert grein fyrir þeim.

4. grein
Stig III. Leiðbeinandi
Leiðbeinandi á þessu stigi hefur rétt til að leiðbeina sjálfstætt fyrir landshreyfinguna og á almennum markaði í nafni hreyfingarinnar. Ætlast er til að sá sem náð hefur þessu stigi sé fær um að þýða, staðfæra eða semja eigin gögn/námskeið. Hann þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði til þess að geta sótt um stigahækkun.
a) Hafa leiðbeint á leiðbeinendanámskeiði.
b) Hafa lokið alþjóðlega leiðbeinendanámskeiðinu Excel.
c) Hafa leiðbeint 200 kl.st og geta gert grein fyrir þeim.

5. grein
Stig IV. Leiðbeinandi
Leiðbeinandi á þessu stigi hefur rétt til að leiðbeina sjálfstætt fyrir landshreyfinguna, á almennum markaði í nafni hreyfingarinnar og á alþjóðlegum vettvangi að uppfylltum reglum Junior Chamber International um alþjóðleg leiðbeinendaréttindi. Leiðbeinendur á þessu stigi leiðbeina fyrir hönd hreyfingarinnar á leiðbeinendatækni og öðrum leiðbeinendanámskeiðum og þegar til þeirra er leitað samkvæmt nánara samkomulagi.

6. grein
Námskeið/Námskeiðsgögn
Vanda skal til undirbúnings og aðstöðu fyrir öll námskeið sem haldin eru í nafni Junior Chamber. Ný eða endurskoðuð námskeiðsgögn hljóti samþykki þriggja leiðbeinenda sem eru a.m.k þriðja stigs leiðbeinendur.

7. grein
Sala námskeiða

a) Námskeiðahald á almennum markaði
Aðildarfélögum og einstaklingum er heimilt að selja námskeið á almennum markaði að fengnu samþykki landsstjórnar. Sala námskeiðs og val leiðbeinenda skal vera í samráði við landsstjórn. 15% af hreinum tekjum af sölu námskeiða að frádregnum kostnaði skal greiða til JCI Íslands 85% skiptast á milli söluaðila og leiðbeinenda eftir samkomulagi.
b) Aðgangur almennings
Heimilt er að selja aðgang að öllum námskeiðum á vegum JCI Íslands og aðildarfélaganna til kynningar á hreyfingunni. Skiptist þá hagnaður á milli söluaðila og leiðbeinenda eftir samkomulagi en 15% af hreinum tekjum af sölu námskeiða skal greiða til JCÍ. Landsstjórn hvers árs gefur út verðskrá vegna námskeiða og skal auglýst verð námskeiðanna ávallt vera samkvæmt þeirri verðskrá.

Arna Björk Gunnarsdóttir
Landsforseti 2006
——————————————————————————–

V.REGLUGERÐ UM STEFNUMÓTUN
í samræmi við 29. grein laga

1. grein
Tilgangur
Að leggja fram tillögur fyrir landsþing hreyfingarinnar til a.m.k. þriggja ára í senn. Stefnumótun hreyfingarinnar er unnin úr tillögum félaga JCI Íslands.

2. grein
Nefndarskipan
Stefnumótunarnefnd er skipuð fimm félögum undir forsæti viðtakandi landsforseta. Landsstjórn, ásamt viðtakandi landsforseta, skipar á fyrsta framkvæmdastjórnarfundi í nefndina eftir tilnefningum frá aðildarfélögum. Nefndarmenn geta átt sæti í nefndinni í hámark þrjú ár.

3. grein
Endurskoðun / Kynning
Endurskoðun stefnumótunar skal fara fram árlega. Stefnumótun skal send með þingboði 21 degi fyrir þing. Stefnumótun skal rædd á þingfundi landsþings og endurskoðuð í kjölfar umræðna á landsþingi. Fullmótuð og endurskoðuð stefnumótun skal kynnt og samþykkt á FS fundi að hausti.
Arna Björk Gunnarsdóttir
Landsforseti 2006
——————————————————————————–

VI.REGLUGERÐ UM BRÉFLEGA ATKVÆÐAGREIÐSLU
í samræmi við 9. grein laga

1. grein
Heimild um bréflega atkvæðagreiðslu nær til aðkallandi málefna er þurfa úrlausnar milli landsþinga. Slík málefni eru til dæmis: Kjör nýs landsstjórnarmanns, hafi annar látið af störfum eða ef enginn frambjóðandi hefur náð kjöri í viðkomandi embætti á landsþingi. Ákvörðun um þingstað, hafi aðstæður eða forsendur fyrir þingboði brostið, þannig að þingbjóðandi treysti sér ekki til þinghalds.

2. grein
Hvert aðildarfélag hefur sama atkvæðafjölda og á síðasta landsþingi.

3. grein
Atkvæðaseðlar skulu sendir aðildarfélögum með sannanlegum hætti.
4. grein
Landsstjórn skal ákveða hverju sinni lengd framboðsfrests, svo og skilafrest atkvæða.

5. grein
Atkvæðagreiðsla telst lögleg er 2/3 hlutar atkvæða hafa borist.

6. grein
Landsforseti skipar þrjá Junior Chamber félaga til að sjá um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar. Lögsögumaður er eftirlitsmaður talningar og skal hann vera viðstaddur er hún fer fram. Niðurstaða talninga skal tilkynnt forsetum aðildarfélaga, bréflega, vottuð af lögsögumanni, innan 7 daga.

Svanfríður A. Lárusdóttir landsforseti 1998
——————————————————————————–

VII.REGLUGERÐ UM ÞINGBOÐ
í samræmi við ákvæði 7. greinar og 12. greinar laga

1. grein
Landsþing Junior Chamber stendur í 3 daga. Landsstjórn getur heimilað skemmra þinghald.

Dagskrá landsþings skal innihalda meðal annars:
- Þingfundi.
- Kynningu frambjóðenda til landsstjórnar og viðtakandi landsforseta.
- Námskeið.
- Úrslit í Rökræðukeppni JC Íslands.
- Dagskrá fyrir senatora, maka og erlenda gesti.
- Lokahóf.
- Framkvæmdastjórnarfund.

2. grein
Þau aðildarfélög sem bjóða til þinghalds skulu gera það á eftirfarandi hátt:
1. Senda kjörnefnd og/eða landsforseta tilkynningu þar um ekki síðar en 1. september fyrir næsta landsþing þar á undan.
2. Senda landsstjórn staðfestingu um leigu þingsala og gistiaðstöðu með tilkynningu um þingboð.

3. grein
Hvert þingboð skal fá 10 mínútur til kynningar áður en gengið er til atkvæða.

4. grein
Í þingboðinu skal eftirfarandi vera innifalið a.m.k.:
1.Þingsalir fyrir þing og námskeið.
2.Öll þinggögn og tæki.
3.Tölva með ritvinnsluhugbúnaði, prentari og ljósritunarvél.
4.Móttaka og gistiaðstaða erlendra gesta á þingstað.
5.Farartæki milli þingstaða, hótela og skemmtistaða, ef þörf krefur.
6.Aðstaða fyrir alla sérfundi.
7.Tveir boðsmiðar fyrir landsforseta.
8.Dagskrá fyrir þá sem sækja þingið, aðra en fulltrúa.
9.Senda ber öllum aðildarfélögum Junior Chamber skráningareyðublöð ásamt dagskrá þingsins.

5. grein
Ef ekkert þingboð berst hefur landsstjórn heimild til að skipa nefnd til að taka að sér þinghald með ofangreindum skilyrðum.

Þorsteinn G. Jónsson
landsforseti 2004
——————————————————————————–

IIX.REGLUGERÐ UM STJÓRN JC HÚSSINS
í samræmi við 30. grein laga

1. grein
Tilgangur
Tilgangur með skipan stjórnarinnar er að tryggja rekstur JC hússins og skila því skuldlausu í hendur Junior Chamber Íslands.

2. grein
Stjórn
Stjórnin skal skipuð þremur einstaklingum, fjárhaldsmönnum hússins þeim Árna Þór Árnasyni senator Junior Chamber Reykjavík og Karli Steingrímssyni senator Junior Chamber Borg, ásamt landsforseta.

3. grein
Verkhættir
Stjórnin skal halda með sér fundi a.m.k. ársfjórðungslega, þar sem rekstur hússins, staða veðskulda og annað það, sem efni þykir til að fjalla um hverju sinni, skal rætt.
Landsforseti ber ábyrgð á störfum stjórnarinnar gagnvart stjórn JC Íslands og skal hann gera henni grein fyrir málefnum hússtjórnar að loknum ofangreindum fundum.
Reikningsár hússins skal miðast við starfsár Junior Chamber Íslands og skulu reikningar þess vera gerðir upp og skilað í hendur landsstjórnar, endurskoðaðir af endurskoðendum hreyfingarinnar í lok starfsárs.

4. grein
Starfslok
Stjórnin skal ljúka störfum í núverandi mynd í lok þess starfsárs, er fjárhaldsmenn hússins hafa losnað endanlega undan fjárhagslegum skuldbindingum tengdum húsinu og rekstri þess.

Þorsteinn V. Sigurðsson landsforseti 1997
——————————————————————————–

IX.REGLUGERÐ UM FRAMFARASJÓÐ
í samræmi við 26. grein laga

1. grein
Heiti
Sjóðurinn heitir Framfarasjóður. Stofndagur sjóðsins er 19. desember 1997. Sjóðurinn er eign Junior Chamber Íslands.

2. grein
Tilgangur
Tilgangur með stofnun sjóðsins er að stuðla framgang og kynningu á hreyfingunni.

3.grein
Sjóðsstjórn
Í sjóðsstjórn eiga sæti fimm félagar þar af fjórir kjörnir á landsþingi og einn landsstjórnarmaður. Framboð til sjóðsstjórnar skulu berast landsstjórn eigi síðar en 1. september það ár sem kjósa skal nýja stjórn í sjóðinn. Í sjóðsstjórn mega sitja senatorar og heiðursfélagar Junior Chamber Íslands eldri en fertugir. Sjóðsstjórn heyrir undir landsforseta.

4. grein
Starfshættir
Stjórnin kýs sér formann til eins árs í senn en skiptir að öðru leiti með sér störfum. Formaður boðar fundi stjórnarinnar og ber ábyrgð á störfum nefndarinnar gagnvart landsforseta. Höfuðstóll sjóðsins skal ávallt ávaxtaður eftir bestu leiðum hverju sinni, samkvæmt mati sjóðsstjórnar. Yfirlit yfir stöðu, ávöxtun og fjárveitingar sjóðsins skal lagt fram á landsþingi. Í upphafi árs, eigi síðar en 10. janúar, skal sjóðsstjórn upplýsa landsstjórn um raunávöxtun fyrra árs. Sjóðnum skal gera sérstaklega skil í reikningum hreyfingarinnar. Endurskoðendur Junior Chamber Íslands eru jafnframt endurskoðendur sjóðsreikninga.

5. grein.
Fjárveitingar úr sjóðnum
Ávöxtunarfé skal notað til sérverkefna á vegum Junior Chamber Íslands. Allir félagsmenn Junior Chamber Íslands geta sótt um styrk úr sjóðnum til verkefna er stuðla að framgangi Junior Chamber Íslands.

6. grein
Umsóknir og úthlutun
Úr sjóðnum er úthlutað tvisvar á ári. Umsóknir skulu berast stjórn sjóðsins fyrir 1.febrúar og 1. september ár hvert á sérstöku umsóknarblaði, sem m.a. er aðgengilegt á heimasíðunni www.jci.is. Sjóðsstjórn skal tilkynna ákvörðun um úthlutun úr framfarasjóð til landsforseta fyrir 10.febrúar og 10. september ár hvert.
7. grein
Leggist hreyfingin niður, skulu ákvæði laga Junior Chamber Íslands um ráðstöfun eigna gilda við ráðstöfun sjóðsins.

Gísli Elís Úlfarsson
landsforseti 2005
——————————————————————————–
Reglugerð um aðildarfélag í endurreisn

1. grein
Sé aðildarfélag með 10 félaga eða færri verður það skilgreint hjá landsstjórn sem aðildarfélag í endurreisn, óski aðildarfélagið eftir því. Umsókn um slíkt þarf að berast skriflega til landsstjórnar.

2. grein
Með umsókn þarf að berast fjárhagsáætlun og aðgerðaáætlun áætlun um endurreisn. Aðgerða áætlun skal samin í samvinnu við landsstjórn og þarf samþyki lnandsforseta áður en skirfleg beiðni um endurreisn er send landsstjórn.

3. grein
Aðildarfélag verður að skila inn til landsstjórnar aðgerðaráætlun til tveggja ára um endurreisn félagsins á sama tíma og beðið er um leyfi til endurreisnar. Forsenda fyrir því að leyfi landsstjórnar verði veitt er ekki einungis félagafjöldi, einnig er horft til aðgerðaráætlunar félagsins sem þarf meðal annars að innihalda fjárhagsáætlun.

4. grein
Fyrsta árið sem aðildarfélag er í endurreisn greiðir það þriðjung félagsgjalda til JCI Íslands. Annað árið greiðir það tvo þriðju en síðan fullt árgjald.

5. grein
Mismunur á félagsgjaldi hjá fullgildu aðildarfélagi og aðildarfélagi í endurreisn skal notast til kynningar og markaðsstarfs félagsins.

6. grein
Fulltrúi landsstjórnar/ umsjónarmaður aðildarfélagasins skal sjá til þess að að aðgerðaáætlun um endurreisn sé fylgt eftir. Nái aðildarfélag settu marki á fyrsta ári fellur niður skilgreiningin um endurreisn um áramót. Landsstjórn hefur fullt vald til rifturnar samnings þess sem gerður er um endurreisn aðildarfélags fari aðildarfélagið ekki eftir reglugerð þessari.

Birgit Raschhofer
Landsforseti JCI Íslands 2008-01-16