Lög, Reglur og Reglugerðir JCI Íslands

1. gr.
Nafn hreyfingarinnar er Junior Chamber International Ísland, skammstafað JCI Ísland. Lögheimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Hreyfingin er aðili að Junior Chamber International (JCI).

2. gr.
Starf hreyfingarinnar skal einkennast af tilgangi og einkunnarorðum JCI.

Einkunnarorð JCI Íslands eru:
Það er skoðun vor:
Að trú á guð veiti lífinu tilgang og takmark,
að bræðralag manna sé þjóðarstolti æðra,
að skipting gæðanna verði réttlátust við einstaklingsfrelsi og frjálst framtak,
að lög skuli ráða fremur en menn,
að manngildið sé mesti fjársjóður jarðar,
að efla og bæta mannlíf sé öllum verkum æðra.

Breyting á einkunnarorðunum er háð samþykki tveggja landsþinga. Tilgangur hreyfingarinnar í anda einkunnarorðanna skal vera: Að stuðla að framþróun alþjóðasamfélagsins með því að veita ungu fólki tækifæri til að efla leiðtogahæfileika sína, félagslega ábyrgð, frumkvæði og samkennd til að stuðla að jákvæðum breytingum. Hreyfingin starfar án tillits til stjórn mála skoðana, trúarbragða, kyns, litarháttar eða þjóðernis.

AÐILD AÐ HREYFINGUNNI

3. gr.
Aðilar að hreyfingunni eru JCI félög sem hlotið hafa viðurkenningu landsstjórnar, og uppfylla eftirfarandi skilyrði:

1. Nafn félagsins hefjist á Junior Chamber International, skammstafað JCI.
2. Fjöldi félagsmanna sé við stofnun að minnsta kosti 20.
3. Félagið hefur sett sér lög sem landsstjórn staðfestir.
4. Félagið hefur valið sér forseta og stjórn
5. Landsritara hafi borist félagatal aðildarfélags.
6. Aðildarfélög skulu uppfylla skilyrði Junior Chamber International.

4. gr.
Landsstjórn getur með ákvörðun, sem hlýtur samþykki 2/3 hluta stjórnarmanna útilokað aðildarfélag, fullnægi það ekki kröfum 3. greinar laga þessara eða það teljist ekki af öðrum orsökum hæft til aðildar.

LANDSÞING

5. gr.
Æðsta stjórn hreyfingarinnar er í höndum þingfundar landsþings. Fjöldi atkvæðisbærra fulltrúa á landsþingi skal vera 61 og skulu þeir skiptast þannig:

Hver landsstjórnarmaður skal hafa 1 atkvæði og hvert löglegt aðildarfélag skal hafa 1 atkvæði fyrir aðild að hreyfingunni. Önnur atkvæði skiptast hlutfallslega milli aðildarfélaga í samræmi við fullgreidd félagsgjöld til JCI Íslands, sbr. 27. gr. laga þessara. Landsforseti, landsgjaldkeri og lögsögumaður reikna út atkvæðamagn aðildarfélaga. Í síðasta lagi 28 dögum áður en þingfundur hefst á landsþingi skulu aðildarfélög senda til landsstjórnar félagatal og ákvarðar það fjölda þingfulltrúa hvers aðildarfélags á yfirstandandi starfsári. Við útreikning skulu þau aðildarfélög sem næst eru því að fá einn viðbótarfulltrúa hljóta uppbótarsæti uns heildarfulltrúafjölda er náð. Í þeim tilvikum þar sem 2 eða fleiri aðildarfélög eiga rétt á síðustu uppbótarsætum skal þó fjölga fulltrúum og skulu bæði/öll hljóta uppbótarsæti. Tilkynningu um atkvæðamagn skal senda aðildarfélögum skriflega ásamt fundarboði landsþings skv. 6. gr. laga þessara. Fulltrúi má ekki greiða atkvæði í umboði annars fulltrúa, né heldur vera úr öðru aðildarfélagi. Hver fulltrúi hefur eitt atkvæði.

JCI félagar án kjörbréfs hafa aðeins tillögurétt á þingfundum hreyfingarinnar. Umsjónarmenn landsstjórnar hafa þar málfrelsi.

6. gr.
Fundarboð landsþings sendist í einu eintaki til hvers aðildarfélags með sannanlegum hætti a.m.k. 21 degi fyrir þing, fundarboði skal fylgja áfangaskýrsla landsstjórnarmanna og umsjónarmanna. Stjórnir aðildarfélaga skulu boða fulltrúa sína á þingið í samræmi við 5. grein. Í fundarboði sem samið er af landsstjórn skal tilkynna dagskrá sem liggur fyrir þinginu. Aukaþing eru haldin þegar landsstjórn álítur það nauðsynlegt eða ef a.m.k. helmingur fullgildra aðildarfélaga krefst þess. Fundarboð aukaþings er samið og sent á sama hátt og venjulegt landsþingsboð.

7. gr.
Landsþing skal haldið síðustu heilu helgina í september ár hvert. Boð til landsþings skal berast landsforseta og vera í fullu samræmi við sérstaka reglugerð um þingboð. Landsstjórn sér um að reglugerðinni sé framfylgt.
Dagskrá þingfundar á landsþingi skal vera:
1. Ávarp landsforseta, þingsetning.
2. Lögð fram kjörbréf og fulltrúar kynntir.
3. Staðfest skipan tveggja þingforseta, tveggja þingritara og tveggja atkvæðateljara.
4. Staðfest lögmæti þingboðs og þings.
5. Fundargerð síðasta landsþings staðfest.
6. Umræður um áfangaskýrslur landsstjórnarmanna og umsjónarmanna.
7. Áfangaskýrslur aðildarfélaga, umræður.
8. Lagabreytingar.
9. Kosning landsforseta.
10. Kosning þriggja varalandsforseta, landsgjaldkera og landsritara.
11. Kosning viðtakandi landsforseta.
12. Ákvörðun um félagsgjald til JCI Íslands.
13. Tilnefningar til starfa á vegum landsstjórnar.
14. Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara.
15. Kosning í stjórn Framfarasjóðs.
16. Stefnumótun/langtímaáætlun.
17. Ákvörðun um næsta þing.
18. Önnur mál.
19. Afhending viðurkenninga (fer fram á lokahófi).
20. Staðfesting á kjöri næstu landsstjórnar (fer fram á lokahófi).
21. Þingslit (fer fram á lokahófi).

Ávörp gesta geta farið fram á hverjum þeim atburði þinghalds sem landsforseti ákveður. Fundargerð sendist fulltrúum innan mánaðar frá lokum þings, undir umsjón ritara landsstjórnar.
Þingforsetar og atkvæðateljarar eru ekki fulltrúar á þingfundi.

8. gr.
Á þingfundi landsþings fara atkvæðagreiðslur fram með handauppréttingu nema fundurinn ákveði annað, tillaga um skriflega atkvæðagreiðslu þarf 2/3 hluta atkvæða.
Einfaldur meirihluti nægir til allra samþykkta, nema þar sem lög kveða á um annað. Kosning í öll embætti landsstjórnar skal vera skrifleg. Sé um fleiri en einn frambjóðanda að ræða í einhver embætti landsstjórnar skal við hvert kjör fella út frambjóðanda sem hlýtur fæst atkvæði við hverja atkvæðagreiðslu, þar til eftir standa eða hafa náð meirihlutafylgi, jafn margir og kjósa skal.

Ef ekki næst meirihlutafylgi í embætti landsstjórnar á ofangreindan hátt, skal þá þegar opna fyrir framboð í viðkomandi embætti og kjör fara fram í upphafi 18. dagskrárliðar þingfundar (önnur mál).

9. gr.
Landsstjórn er heimilt að leita bréflega samþykkis aðildarfélaga og landsstjórnar um málefni er venjulega heyra undir landsþing. Sjá nánar í reglugerð.

LAGABREYTINGAR

10. gr.
Tillögur um breytingar á lögum hreyfingarinnar skal senda landsstjórn skriflega ásamt rökstuddri greinargerð, í síðasta lagi 28 dögum fyrir þing ár hvert. Breytingartillaga skal birt orðrétt í fundarboði þess þings er ræðir hana. 2/3 hluta atkvæða þarf til breytinga á lögum. Landsstjórn setur reglugerðir.

LÖGSÖGUMAÐUR

11. gr.
Landsforseti skipar lögsögumann hreyfingarinnar við upphaf starfsárs. Lögsögumaður má hvorki vera fulltrúi aðildarfélags né landsstjórnar.

KJÖRNEFND

12. gr.
Í kjörnefnd eiga sæti hverju sinni þrír JCI félagar, skipaðir af landsforseta. Kjörnefnd og/eða landsforseti taka á móti þingboðum og framboðum til embættis landsforseta og annarra landsstjórnarmanna fyrir næsta starfsár. Framboð til landsforseta skulu hafa borist ekki síðar en 1. maí. Framboð til viðtakandi landsforseta og annarra landsstjórnarmanna skulu hafa borist ekki síðar en 1. september og skulu þau lögð fram á landsþingi. Frambjóðendur til landsstjórnar skulu vera fullgildir og löglegir félagar, hafa verið stjórnarmenn í aðildarfélagi, frambjóðandi til embættis landsforseta skal hafa setið í landsstjórn áður, frambjóðendur mega ekki hafa gegnt viðkomandi embætti áður.

KJÖRBRÉFANEFND

13. gr.
Í kjörbréfanefnd eiga sæti hverju sinni ritari, gjaldkeri og varalandsforseti með svið samfélags. Kjörbréfanefnd sendi aðildarfélögum eigi síðar en 21 degi fyrir þing sérstök kjörbréfaeyðublöð. Fyrir setningu landsþings skulu aðildarfélög leggja fram hjá landsgjaldkera útfyllt kjörbréf. Kjörbréfanefnd úrskurðar um gildi kjörbréfa skv. 5. grein og skilar landsþingi greinargerð um nöfn og tölu atkvæðisbærra fulltrúa við upphaf þess.

STJÓRN OG FORSETI HREYFINGARINNAR

14. gr.
Stjórn hreyfingarinnar nefnist landsstjórn. Á vegum landsstjórnar starfa umsjónarmenn. Tilgangur landsstjórnar er að starfa sem sameiginlegur málsvari JCI félaga á Íslandi gagnvart öðrum aðilum, innlendum sem erlendum, hún ber ábyrgð á starfsemi hreyfingarinnar og skal vinna að tilgangi hennar og markmiðum í samræmi við lög hennar og ákvarðanir landsþings. Landsstjórn lætur þýða og dreifir upplýsingum til aðildarfélaga, leiðbeinir þeim og hefur eftirlit með starfi þeirra og eflir samstöðu og samstarf með þeim. Landsstjórn er heimilt að kveða sér til aðstoðar sérhvert aðildarfélag eða einstaka félaga, sjái hún þess þörf. Umsjónarmenn landsstjórnar eru formenn landsstjórnarnefnda og umsjónarmenn tiltekinna verkefna.

15. gr.
Landsstjórn fyrir komandi starfsár er kosin á sérstökum dagskrárlið á landsþingi ár hvert. Í landsstjórn skulu sitja landsforseti, 2-4 varalandsforsetar, landsritari og landsgjaldkeri. Stjórnarskipti fara fram um áramót. Kjörinn landsforseti situr landsstjórnarfundi án atkvæða réttar fram til stjórnarskipta. Á landsþingi skal kjósa í embætti viðtakandi landsforseta. Viðtakandi landsforseti situr landsstjórnarfundi en hefur ekki atkvæðarétt.

16. gr.
Landsforseti er formaður stjórnar. Öll aðildarfélög skulu hljóta heimsókn landsforseta a.m.k. einu sinni á hverju ári. Öll aðildarfélög skulu hljóta heimsókn a.m.k. eins landsstjórnarmanns í upphafi starfsárs og oftar ef þörf krefur.

17. gr.
Stjórn er ákvörðunarhæf þegar landsforseti ásamt þremur meðstjórnarmönnum eru viðstaddir. Við stjórnarákvarðanir ræður einfaldur meirihluti. Við jöfn atkvæði ræður atkvæði landsforseta. Sjá þó 4. grein.

18. gr.
Viðtakandi landsstjórnarmenn hafa umsjón með námskeiði fyrir viðtakandi stjórnir aðildarfélaganna og embættismenn landsstjórnar fyrir 30. nóvember.

19. gr.
Prókúruhafi er tilnefndur af landsstjórn.

FRAMKVÆMDASTJÓRN

20. gr.
Landsstjórn ásamt forsetum aðildarfélaga og umsjónarmönnum landsstjórnar nefnist framkvæmdastjórn. Landsstjórn boðar til framkvæmdastjórnarfunda og skulu þeir vera að minnsta kosti tveir á starfsárinu, í upphafi starfsárs í janúar og að hausti að loknum kjörfundum aðildarfélaganna þó eigi síðar en 1. desember ár hvert. Jafnframt skal boðað til a.m.k. eins stöðufundar á vormisseri.

21. gr.
Á framkvæmdastjórnarfundi í janúar skulu fráfarandi landsstjórnar- og umsjónarmenn leggja fram lokaskýrslu og ársreikning hreyfingarinnar, undir sérstökum dagskrárliðum. Fráfarandi landsforseti fer með atkvæði landsstjórnar við afgreiðslu þessara liða. Aðildarfélög skulu einnig leggja fram skriflega skýrslu yfir síðasta starfsár á stöðluðu formi sem landsstjórn útvegar. Meginhlutverk framkvæmdastjórnarfundar í janúar eru ákvarðanir um starfið framundan, ásamt afgreiðslu á framkvæmdar- og fjárhagsáætlun hreyfingarinnar.

22. gr.
Landsforseti skipar fundarstjóra á framkvæmdastjórnarfundum í samráði við umsjónarfélag eða stjórnar fundinum sjálfur kjósi hann það. Landsforseti hefur eitt atkvæði og hvert aðildarfélag eitt atkvæði. Landsforseti getur þó veitt öðrum landsstjórnarmanni umboð til að fara með sitt atkvæði. Í forföllum forseta aðildarfélags getur hann veitt öðrum félaga úr sínu aðildarfélagi skriflegt umboð til þess að fara með atkvæði síns aðildarfélags.

23. gr.
Landsforseti getur boðið áheyrnarfulltrúum að taka til máls á framkvæmdastjórnarfundum.

LEIÐBEINENDARÉTTINDI

24. gr.
Leiðbeinendaréttindi JCI Íslands skiptast í fjögur stig og þurfa leiðbeinendur hreyfingarinnar að hljóta staðfestingu landsstjórnar samkvæmt reglugerð þar að lútandi. Aðildarfélögum og einstaklingum er ekki heimilt að selja námskeið eða leiðbeina á almennum markaði í nafni JCI án samþykkis landsstjórnar.

ÁRSSKÝRSLUR, REIKNINGAR

25. gr.
Starfsár og reikningar hreyfingarinnar er almanaksárið. Landsgjaldkeri skal árlega, ekki síðar en 7 dögum eftir landsstjórnarskipti, afhenda reikninga ásamt fylgiskjölum til kjörinna skoðunarmanna. Skoðaðir reikningar ásamt fylgiskjölum skulu liggja frammi á skrifstofu JC Íslands í að minnsta kosti fjóra tíma í vikunni fyrir 1. framkvæmdastjórnarfund, til skoðunar fyrir félagsmenn. Skoðunarmenn skila skýrslu sinni á 1. framkvæmdastjórnarfundi.

FRAMFARASJÓÐUR

26. gr.
Stjórn sjóðsins skal skipuð fimm félögum, þar af fjórum kjörnum á landsþingi til tveggja ára í senn, kjörnir fulltrúar geta ekki verið úr landsstjórn né forsetar aðildarfélaga, fimmti stjórnarmaðurinn er sitjandi landsforseti hvers tíma eða hans fulltrúi úr landsstjórn. Stjórnin kýs sér formann. Sjóðsstjórn skal hafa umsjón með ávöxtun höfuðstóls ásamt því að fjalla um fjárveitingar úr sjóðnum, sjá nánar reglugerð. Ekki er heimilt að skerða höfuðstól sjóðsins né verðbætur nema með samþykki 2/3 hluta þingfundar landsþings. Yfirlit yfir stöðu, ávöxtun og fjárveitingar sjóðsins skal lagt fram á landsþingi ár hvert.

FÉLAGSGJÖLD

27. gr.
Upphæð félagsgjalda og skráningargjalds til JCI Íslands skal ákveða á landsþingi fyrir komandi starfsár. Fyrir 1. desember skulu aðildarfélög skila félagatali til landsstjórnar sem ákvarðar fjölda félaga sem greitt er af til JCI Íslands næsta ár. Ef ekki berst félagatal fyrir 1. desember þá gildir félagatal landsþings. Heiðursfélagar JCI Íslands undir fertugu eru undanþegnir greiðslu félagsgjalda til JCI Íslands og teljast fullgildir félagar. Verði vanskil á greiðslu félagsgjalda, leggjast á hæstu lögleyfðir dráttarvextir. Sé um vanskil að ræða missir viðkomandi aðildarfélag atkvæðisrétt fulltrúa sinna á landsþingi, framkvæmdastjórnarfundum og við bréflega atkvæðagreiðslu. Ný og endurreist aðildarfélög greiði þriðjung félagsgjalda fyrsta starfsár. Nánari útfærsla á greiðslufyrirkomulagi skal sett í reglugerð.

SVIÐ TÆKIFÆRA

28. gr.
Störf landsstjórnar og aðildarfélaga, utan beinna stjórnarstarfa, eru á fjórum sviðum tækifæra sem skiptast á sama hátt og samþykkt hefur verið af Junior Chamber International. Svið tækifæranna eru:

  • einstaklings

  • samfélags
  • viðskipta
  • alþjóðasamstarfs.
    Landsstjórn skal tilgreina hvaða verkefni eða störf teljast tilheyra hverju þessara sviða með sérstakri reglugerð þar um.

    STEFNUMÓTUN

    29. gr.
    Hreyfingin setur fram stefnumið sín í formi langtímaáætlunar til a.m.k. þriggja ára í senn. Tillögur stefnumótunarnefndar skulu sendar stjórnum aðildarfélaga minnst 21 degi fyrir þing. Áætlunin skal rædd á þingfundi landsþings og samþykkt á FS fundi á haustmisseri.

    AÐSETUR HREYFINGARINNAR

    30. gr.
    Aðsetur hreyfingarinnar er í Reykjavík. JCI húsið er Hellusund 3. Stjórn JCI hússins skal skipuð landsforseta og tveimur fjárhaldsmönnum hússins samkvæmt reglugerð.

    SLIT HREYFINGARINNAR

    31. gr.
    Ákvörðun um slit hreyfingarinnar skal tekin af tveimur þingum í röð. Til samþykktar þarf 2/3 hluta atkvæða á báðum þingum. Seinna þingið skal ákveða um ráðstöfun eigna eftir tillögum landsstjórnar.

    32. gr.
    Lög um félög og fundarsköp ráða þar sem fyrirmæli skortir í lögum þessum.

    ———————

    Lög með breytingum frá 45. landsþingi haldið í Stykkishólmi 22.-26. september 2006.
    Staðfesting:

    Arna Björk Gunnarsdóttir
    Landsforseti JCI Íslands 2006

    og

    Þorsteinn Jónsson
    Lögsögmaður JCI Íslands 2006