Ræðunámskeið – Ræða I

Ræðunámskeið JCI Íslands – Ræða 1

Það er vel þekkt að stærstur hluti fólks á erfitt með að halda ræðu af öryggi og sannfæringu.  Algengasti misskilningurinn er þó að þetta sé á einhvern hátt meðfæddur eiginleiki, að sumir hafi þetta í blóðinu umfram aðra.  Hið rétta er að öll samskipti eru lærð hegðun og það á einnig við um ræðumennsku. Það sem flesta skortir einfaldlega er fyrst og fremst leiðsögn, æfing og uppbyggileg endurgjöf.

JCI hreyfingin býður upp á allt þrennt.  Á Ræðu 1 eru þátttakendur þjálfaðir í grundvallaratriðum ræðumennskunnar og fá tækifæri að flytja ræður fyrir hin ýmsu tilefni.  Meðal þeirra má nefna tækifærisræður, mótmælaræður, söluræður og kappræður og eru þátttakendur þjálfaðir jafnframt í líkams- og raddbeitingu, notkun hjálpargagna við flutning o.fl.

Námskeiðið tekur í heild 6 kvöld og þátttakendur semja og flytja ræður fyrir öll kvöldin utan þess fyrsta.

Æskilegur fjöldi þátttakenda er 8-12 manns á hverju námskeiði. Námskeiðið kostar 30.000 kr.  Þess má geta að þetta námskeið er viðurkennt af öllum stéttarfélögum sem veita í mörgum tilfellum styrki fyrir þessu námskeiði.  JCI félögum stendur það hinsvegar til boða innifalið í árs félagsgjaldi.

Aðildarfélög JCI Íslands halda Ræðu 1 námskeiðið reglulega. Við hvetjum félagsmenn sem og aðra til að fylgjast með á heimasíðunni og/eða að skrá sig á póstlistann okkar hér til hliðar þar sem þú getur m.a. skráð þig sérstaklega til að fá upplýsingar um næstu námskeið.

Sé áhugi á að sækja næsta námskeið, vinsamlegast skráið ykkur á lista með því að fylla út eftirfarandi form.

Nafn (Nauðsynlegt)

Netfang (Nauðsynlegt)

Skilaboð:

Enga feimni, deildu og lýstu yfir ánægju!