Námskeiðin
JCI hreyfingin hefur lengi verið þekkt fyrir að veita einstaklingum markvissa og gagnlega þjálfun í formi námskeiðahalds.
Meðal þess má nefna þjálfun á sviði:
- Samskipta og tjáningar
- Ræðumennsku og kynninga
- Skilvirkra fundarstarfa (Fundarstjórnun, ritun og fundarsköp fyrir stærri aðalfundi)
- Hópastarfs ýmiskonar
Settu þig í samband við okkur ef þú vilt frekari lýsingu á þessum helstu námskeiðum sem JCI Ísland stendur fyrir.
Fyrir utan þau námskeið þá standa aðildarfélög JCI Íslands reglulega að mjög fjölbreyttum námskeiðum, frumsömdum sem og ýmiskonar námskeiðsleikjum og hvetjum við fólk til að fylgjast með því á atburðardagatalinu.


