JCI Verkefni
Stór partur af JCI starfinu er að skapa jákvæðar breytingar í samfélaginu. Við teljum að einstaklingur geti haft mikil áhrif á umhverfi sitt og hvað þá ef hann er með sterkt teymi eins og JCI á bakvið sig. JCI hvetur félaga eindregið til að standa upp og leysa úr vandamálum í stað þess að kvarta undan þeim. Ýmis virkilega flott og árangursrík samfélagsverkefni hafa myndast á þennan hátt, bæði innan lands sem utan. Hægt er að nefna sem dæmi herferðina „Á eftir bolta kemur barn“ sem byrjaði hjá JCI og barnfóstru námskeið Rauða krossins sem var gjöf frá JCI.
Ýmis verkefni hafa formast í gegnum tíðina og byggjast þau algjörlega á áhuga og hvata félaga hverju sinni. Verkefni sem hafa fest sig í sessi eru meðal annars verkefnin “Framúrskarandi ungir einstaklingar” og “Nothing but nets” sem eru gegnumgangandi á alþjóðavísu. Í þessum verkefnum er annars vegar verið að viðurkenna unga hæfileikaríka einstaklinga og hins vegar verið að safna fyrir malaríunetum og styðja við ung börn í Afríku.
Hér á landi eru einkum tvö stærri verkefni í vinnslu. Þau eru “Ættleiðing leikvalla” og “Flokkunargleði” og eru bæði hönnuð og framkvæmd að öllu leyti að frumkvæði núverandi JCI félaga. Með þessu stuðlum virkjum við frumkvæði einstaklingsins og gefum honum tækifæri á að öðlast dýrmæta reynslu og þekkingu á að stýra verkefnum sem nýtist svo á öðrum sviðum.




