Hvað er JCI?

Vilt þú öðlast færni sem nýtist þér á vinnustaðnum, í félagslífinu og í einkalífinu?

Vilt þú kynnast nýju fólki og stækka tengslanetið þitt?

Vilt þú skila betri árangri á fundum, í hópastarfi og við skipulagningu viðburða?

Þá er JCI eitthvað fyrir þig!

Junior Chamber er alþjóðleg hreyfing fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 40 ára með áhuga og metnað til að efla hæfileika sína og félagslega færni.

Hjá Junior Chamber hafa lífsgæði fólks forgang og undirstaða starfsins er að byggja upp einstaklinginn, gefa honum tækifæri til að vaxa í starfi og leik og þannig gera hann hæfari til takast á við stjórnun og ábyrgð í félagsstarfi og athafnalífi.

Hlutverk okkar er:
Að veita ungu fólki tækifæri til að efla hæfileika sína og með því stuðla að jákvæðum breytingum.

Tækifæri
Vettvangur til að sækja fræðslu, setja hana í framkvæmd og fá bæði hvatningu og leiðsögn. Með þátttöku í JCI öðlast félagsmenn dýrmæta reynslu sem nýtist jafnt í leik og starfi.

Efla hæfileika sína
Félagar efla hæfileika sína með því að fá þjálfun, framkvæma hugmyndir sínar og að takast á við áskoranir sem JCI starfið býður uppá.

Stuðla að jákvæðum breytingum
Jákvæðar breytingar fyrir einstaklinginn persónulega og fyrir samfélagið í heild. Að bjóða upp á verkefni sem leysa úr læðingi orku sem er til staðar og hvetja til þroska og virkni.

Hefurðu áhuga á að vita meira og taka þátt?
Smelltu þá hér => skráning í JCI