Kynningarkvöld JCI


Kynningarkvöld – 24. ágúst 2016 kl. 20:00 í Hellusundi 3.kynningarkvold-web-banner

Vilt þú…
– taka af skarið?
– hafa áhrif á samfélagið?
– efla hæfileika þína?
– vera hluti af alþjóðlegum félagasamtökum

…eða ertu bara forvitin? Kíktu við á kynningarkvöld og finnum út hvað þú græðir á að vera félagi. Kynningarkvöldið hefst 24. ágúst (miðvikudagur) og sjáðu hvað JCI snýst um.

JCI er fyrir alla á aldrinum 18-40 ára og er vettvangur til að sækja fullt af skemmtilegum námskeiðum, víkka út tengslanetið og ná sér í dýrmæta reynslu með því að hrinda í framkvæmd eigin hugmyndum og nýta þá þekkingu sem maður hefur aflað sér.

Á fyrsta kvöldinu kynnum við hreyfinguna og þátttakendum gefst tækifæri til að kynnast félögum og fá betri innsýn í starfið. Við segjum frá því hvað það er sem við gerum, af hverju, hvernig og hvað er framundan hjá okkur. Einnig hvernig áhugasamir geti tekið þátt og notið ávaxta starfs okkar.
Við förum við yfir þær leiðir sem við notum til að byggja upp leiðtoga og hvernig það nýtist þér til að hafa jákvæð árif á samfélagið. Jafnframt verða næstu þrjú kvöld kynnt lauslega; hvað þau ganga út á, hvers má vænta af þeim og hvaða þekkingu/færni þátttakendur mega búast við að öðlast.

Á kvöldinu gefst færi á að skrá sig á ókeypis námskeiðsseríu JCI sem verður haldin næstu þrjá miðvikudaga þar á eftir. Nánari lýsing á námskeiðunum.

31. ágúst: árangursríkt hópastarf
7
. september: skilvirkir fundir
14. september: skipulagning viðburða

Hlökkum til að sjá þig

Kveðja
Skipuleggjendur

Hægt er að hafa samband við Þorkel Pétursson í tölvupósti á thorkell.petursson@jci.is ef einhverjar spurningar vakna.

———————-

Would you like to attend an introduction to JCI in English? Check out this event: Introduction to JCI – English

Skráning

Bookings are closed for this event (For members only (then you need to log in or register) - or the event has already started and therefore it is closed for bookings)

Dags. og tími:
24. Aug 2016
20:00 - 22:00

Staður:
JCI Húsið

0
Hlaða niður viðburð í iCal

Flokkur: