Verkefnasumar JCI – kynning í kvöld fimmtudag 25.júní
Verkefnavinna Sumarið 2009 Á fimmtudagskvöld kl 20:00 í JCI húsinu verður kynning á verkefnum sem áhugi er fyrir að starfa að í sumar. Um er að ræða fjölbreytt verkefni, bæði innlend og með alþjóðlegum vinkli, sem höfða til allra. Nú í sumar eru margir sem hafa úr auknum tíma að spila. Það að taka þátt í skemmtilegu verkefni er bæði afar uppbyggileg notkun á tíma, gefur skemmtilega upplifun og reynslu af því að vinna með öðrum einstaklingum og getur fætt af sér óvænt tækifæri þegar fram...
lesa meiraRæðukeppni JCI
Í dag, þriðjudaginn 9. Júní kl. 20:30 verður rökræðukeppni milli JCI Esju og JCI GK. Þetta er skemmtileg keppni þar sem bæði lið eiga möguleika á að komast í með lið sitt á Landsþing sem verður fyrir norðan. Umræðuefnið er: Lagt er til að tækifæri ungu kynslóðarinnar séu öll erlendis í framtíðinni. Þetta verður í sal sjálfstæðisflokksins í Hlíðasmára 19. Komdu og sjáðu tvö frábær lið að keppa um það að komast á landsþing Hvenær: Þriðjudaginn 9. júní kl: 20:30 Enga feimni, deildu...
lesa meiraEvrópuþing JCI
JCI heldur Evrópuþing einu sinni á ári, en að þessu sinni er Evrópuþingið haldið í Ungverjalandi, Búddapest. JCI Ísland sendi sendinefnd á þingið, meðal annars er Kjartan Hansson með í för en hann mun keppa fyrir Íslands hönd í ræðukeppni einstaklinga, en undanfarið hefur Kjartan lagt mikla vinnu í að undirbúa keppnina. Landsforseti JCI er einnig með í för, en á meðan hann er í burtu er Kristín Guðmundsdóttir, varalandsforseti, handhafi landsforsetavalds. Enga feimni, deildu og lækaðu!
lesa meiraKynningarfundur JCI Esju
Fimmtudaginn 21. maí kl. 15.00 ( uppstigningardagur ) ætlum við í JCI Esju að vera með kynningu á félaginu og því sem við ætlum að bjóða upp á í sumar. JCI verður með öfluga dagsskrá í sumar sem hentar einstaklega vel í ástandinu í dag. Fjölmargir nemendur eru án vinnu og fjöldi útskriftarnema ekki komnir með framtíðarstarf. Í ástandi sem þessu er það gríðarlega mikilvægt fyrir alla að halda sér virkum og taka þátt í uppbyggilegu starfi. Með því að ganga til liðs við okkur í JCI Esju færð...
lesa meiraFélagsfundur JCI GK
Á Uppstigningardag, fimmtudaginn 21. maí nk kl. 14:00, mun JCI GK halda félagsfund í Heiðmörk. Hefð er orðin fyrir því að GK haldi einn félagsfund í Heiðmörk ár hvert og eru allir velkomnir. Við munum grilla og fara í ýmsa leiki, spáin gerir ráð fyrir hálfskýjuðu veðri, 14 stiga hita og hægum vindi, þannig að veðrið ætti ekki að stoppa neinn. Félagið mun leggja til grillkol og ýmsar sósur. Allir taka sjálfir með sér það sem á að grilla, pylsur og brauð (eða annað sem þægilegt er að smella á...
lesa meiraJCI Osaka í Japan býður framúrskarandi ungum einstaklingum í heimsókn!
JCI hreyfingin hefur í fjölda ára staðið fyrir útnefningu á framúrskarandi ungum einstaklingum um heim allan – einstaklinga sem eru að gera frábæra hluti á ólíkum sviðum en hafa oft ekki fengið mikla viðurkenningu á þeim störfum. Í ár hefur JCI Osaka, aðildarfélag í Japan tekið þetta verkefni skrefinu lengra og stendur fyrir samkeppni ætlaða framúrskarandi ungum einstaklingum í heiminum. Þema þessarar samkeppni er: “Bringing Business and Society Together Through Social Action Programs. –...
lesa meira

