JCI active citizen framework
Á félagsfundinum í kvöld sýndi varaheimsforsetinn okkar hann Robbert okkur flott myndband sem útskýrir í hnotskurn hvað JCI gengur út á. Hér er hægt að sjá myndbandið góða.
lesa meiraViðburðir framundan
Það er ýmislegt spennandi framundan. Þar á meðal er sameiginlegur félagsfundur, ræða I, The JCI Apprentice Academy og þorrablót Esjunnar. Smelltu á lesa meira hnappinn til að vita meira!
lesa meiraVel heppnuð fimmtudagsfræðsla
Þann 9. febrúar var Silja Jóhannesdóttir með gagnlega fimmtudagsfræðslu um atvinnuleit. Það sem kom meðal annars fram var hvernig ferilskrá á að vera og hvernig á að koma fram í atvinnuviðtölum. Einnig fór hún yfir helstu mistök sem ber að varast hvað varðar ferilskrá og atvinnuviðtal. Að lokum var stuttlega farið í þróunina á vinnumarkaði. Fræðslan var vel sótt af JCI félögum, sem sýndu efninu mikinn áhuga. Enga feimni, deildu og lækaðu!
lesa meiraLandsstjórnarskipti og verðlaunaafhending
Síðastliðið laugardagskvöld var haldinn glæsilegur hátíðarkvöldverður hjá hreyfingunni þar sem fram fóru Landsstjórnarskipti. Veislustjóri kvöldsins var Hjalti Kristinn Unnarsson og stóð hann sig með stakri prýði. Þá var hvert og eitt aðildarfélag var með skemmtiatriði og er óhætt að segja að þau hafi öll komið skemmtilega á óvart og vakið mikla kátínu viðstaddra, sérstaklega dansatriðið mikla! Ingólfur Már Ingólfsson, landsforseti 2011, veitti ýmis verðlaun fyrir vel unnin störf á síðasta...
lesa meiraFyrsti FS fundur ársins
Fyrsti FS fundur ársins var haldinn síðastliðinn laugardag í Frostaskjóli, KR heimilinu. Á fundinn mættu liðlega 30 manns enda var fundurinn hinn skemmtilegasti. Fyrri hluti fundarins fór í að gera upp 2011 og gerði fráfarandi landstjórn það með sóma og skilar góðu búi. Eftir ljúffengan hádegisverð tók við yfirferð yfir árið framundan og er óhætt að segja að árið sé sérstaklega spennandi fyrir nýja og gamla JCI félaga… svo ekki sé minnst á verðandi félaga. Stórar akademíur, erlendir...
lesa meiraHarpa og áramótaheitin
Nýlega birtist grein eftir Hörpu Grétarsdóttur, JCI félaga, á Vefpressunni. Í greininni fjallar hún um mikilvægi þess að setja sér ekki bara markmið sem snúa að líkamlegri heilsu heldur einnig markmið sem lúta að betri andlegri heilsu og því að láta gott af sér leiða. Í greininni segir meðal annars...
lesa meira

