JCI útilegan 2011
Hin árlega JCI útilega hreyfingarinnar var haldin á tjaldsvæðinu á Selfossi um síðustu helgi. Einar Valmundsson hvatti til og sá um skipulagningu á útilegunni og kunnum við honum bestu þakkir fyrir. Félagarnir byrjuð að streyma á svæðið strax á föstudaginn og síðan bættust fleiri við á laugardaginn og enn aðrir kíktu í heimsókn. Fengum ljómandi veður og farið var t.d í hinn geysivinsæla kubba-leik, börnin fóru í kapphlaup og fengu vegleg verðlaun. Hitað var upp í kolunum og hinar...
lesa meiraInntaka nýs félaga og lokakvöld ræðu 1
Mánudagskvöldið 27. júní lauk námskeiðinu ræða 1 og að venju með ræðukeppni. Umræðuefnið var krassandi því lagt var til að áfengi yrði bannað í Reykjavík! Keppnin fór fram með miklum ágætum. Fóru leikar svo að tillöguflytjendur höfðu betur, lið þeirra skipuðu þau: Auður Steinberg, Sigurður Richter og Einar Örn Gissurarson. Liðsstjóri þeirra var Einar Valmundsson. Nafnbótin ræðumaður kvöldsins féll hins vegar í skaut andmælenda og var það hún Þórhildur Önnudóttir sem hlaut hana. ...
lesa meiraLok Ræðu 1: “Lagt er til að áfengi verði bannað í Reykjavík”
Áfengi verður bannað í Reykjavík ! Að undanförnu hafa nokkrir vaskir einstaklingar setið Ræðu 1 og nú er komið að lokakvöldinu. Málefnið sem þar verður tekið fyrir ætti að skipta alla Reykvíkinga máli og önnur sveitafélög gætu séð sér ávinning í því að tillagan nái fram að ganga en hún hljóðar svo “Lagt er til að áfengið verði bannað í Reykjavík” Að venju talar annað liðið með tillögunni og hitt á móti og verður spennandi að sjá hvort liðið mun hafa betur. Þessi...
lesa meiraViltu hafa áhrif?
Vilt þú læra að hafa áhrif? JCI hreyfingin er félagsskapur ungs fólks á aldrinum 18 – 40 ára. JCI er alþjóðleg hreyfing sem starfar í yfir 100 löndum um allan heim. Í JCI bjóðum við uppá vettvang þar sem ungt fólk getur þjálfað sig upp í vandaðri félagslegri færni og þannig haft jákvæð áhrif á sjálft sig og umhverfi sitt. Með félagslegri færni er átt m.a. við þjálfun í framkomu & tjáningu, fundafærni, verkefnaskipulagningu, samskiptafærni, að leiða & vera virkur í hópum sem skila...
lesa meiraGlæsileg TOYP-hátíð!
Föstudaginn 10. júní var haldin glæsileg móttaka í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík. JCI Ísland var þar að veita tveimur framúrskarandi Íslendingum viðurkenningu fyrir árið 2011: Magnús Geir Þórðarson í flokknum ‘störf/afrek á sviði menningar’ og Freyja Haraldsdóttir í flokknum ‘einstaklingssigrar og/eða afrek’. Freyja og Magnús eru vel að þessum viðurkenningum komin. Þau hafa bæði verið einstaklega góðar fyrirmyndir á sínum sviðum og smitað fólk með sér með áhuga sínum...
lesa meiraTOYP verðlaunaafhending 2011
Kæru félagar! Föstudaginn 10. júní kl. 18:00-20:00 mun JCI Ísland halda móttöku í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1 (Nauthólsvík). Þar verða verðlaunaðir framúrskarandi ungir Íslendingar fyrir árið 2011. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson er verndari verkefnisins og er staðfest að hann mætir og afhendir verðlaunin. Verðlaunagripirnir eru sérhannaðir af Jónasi Braga, glerlistamanni. Samstarfsaðilar JCI Íslands eru Landsbankinn...
lesa meira

