Litháen – ferð landsforseta
Eitt af helstu hlutverkum landsforseta hverju sinni er að vera talsmaður JCI Íslands á erlendri grundu. Dagana 8.–10. september fór ég til Litháen, einmitt í þessum erindagjörðum. Aðalerindið var að sækja forsetafund Norræna hópsins sem starfræktur er innan raða alþjóðlegu JCI hreyfingarinnar. Hópnum tilheyra Norðurlöndin fimm, Ísland, Noregur, Svíþjóð, Danmörk og Finnland, og síðan Eystrasaltslöndin þrjú, Eistland, Lettland og Litháen. Norræni hópurinn hittist að jafnaði fjórum sinnum yfir...
lesa meiraNý stjórn hjá JCI Lind
Þriðjudaginn 13. september fór fram kjörfundur og aukaaðalfundur hjá JCI Lind. Á kjörfundinum var kjörin ný stjórn en hana skipa: Freyr Hólm Ketilsson, forseti Davíð Ingi Magnússon, ritari Eyjólfur Árnason, gjaldkeri Sigurður Sigurðsson, varaforseti Óskum við nýrri stjórn til hamingju með kjörið. Nýja stjórnin hefur þegar hafið störf.
lesa meiraMenningarnótt í myndum
Á Menningarnótt var opið hús í JCI húsinu, Hellusundi. Boðið var uppá stutt námskeið yfir daginn. Ragnar Valsson var með námskeiðið Listin að kynna, Tryggvi F. Elínarson bauð uppá námskeiðin Leiðin að draumastarfinu og Táknmál líkamans, og síðan buðu Tryggvi og Árna Árna uppá námskeiðið Ert þú leiðinlega týpan? Að venju stigu nokkrar hljómsveitir á stokk og leyfðu gestum og gangandi að njóta fagurra tóna, þær voru: Dimma, Dalton, Útrás og Five Bellies. Gott rennerí af fólki var yfir allan...
lesa meiraNýliðaferli JCI Íslands
Vilt þú….. — *Auka færni þína í að halda kynningar og ræður ?* — *Kynnast nýju fólki og stækka tengslanet þitt ?* … — *Sækja fjölbreytt námskeið og viðburði ?* — *Vera hluti af alþjóðlegri hreyfingu ungs fólks ?* Fyrsta nýliðanámskeið haustsins fer af stað mánudaginn 29.ágúst n.k. Það verður haldið í húsakynnum JCI, Hellusundi 3 við hliðina á Kvennaskólanum. Á fyrsta kvöldinu verður starf JCI hreyfingarinnar kynnt. Á næstu kvöldum verður fjallað um -...
lesa meiraMenningarnótt – opið JCI hús og dagskrá
Ágætu félagar, Að venju verður JCI húsið Hellusundi 3 opið á Menningarnótt næstkomandi laugardag 20. ágúst. Dagskrá stendur yfir frá kl. 13 til 19, boðið uppá námskeið, léttan leik og lifandi músík. Kaffiveitingar verða til sölu. Hvetjum við ykkur til að kíkja við á laugardaginn. Allir velkomnir, ekki eingöngu JCI félagar. JCI húsið Hellusundi 3, dagskrá á Menningarnótt 2011: 13.00 Listin að kynna 14.00 Leiðin að draumastarfinu 15.00 Táknmál líkamans 17.15 Ert þú leiðinlega týpan ? - Kynning á...
lesa meiraJCI fréttir loksins komnar út!
Kæru félagar! Fyrsta tölublað JCI frétta hefur nú litið dagsins ljós. Þetta verður vonandi fyrsta skrefið í langri og árangursríkri útgáfu okkar. Hið danska iPaper Magazine gerir okkur þetta kleift og við kunnum þeim bestu þakkir fyrir. Þetta fyrsta tölublað er 8 síður og sitt mun hverjum þykjast og finnast. Enda á það að vera þannig. En þar sem þetta er miðillinn okkar, þá viljum við endilega fá ábendingar um efni og það sem er gott og það sem er vont. Undir flipanum “Félaganet” og...
lesa meira

