Viltu hafa áhrif?
Vilt þú læra að hafa áhrif? JCI hreyfingin er félagsskapur ungs fólks á aldrinum 18 – 40 ára. JCI er alþjóðleg hreyfing sem starfar í yfir 100 löndum um allan heim. Í JCI bjóðum við uppá vettvang þar sem ungt fólk getur þjálfað sig upp í vandaðri félagslegri færni og þannig haft jákvæð áhrif á sjálft sig og umhverfi sitt. Með félagslegri færni er átt m.a. við þjálfun í framkomu & tjáningu, fundafærni, verkefnaskipulagningu, samskiptafærni, að leiða & vera virkur í hópum sem skila...
lesa meiraGlæsileg TOYP-hátíð!
Föstudaginn 10. júní var haldin glæsileg móttaka í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík. JCI Ísland var þar að veita tveimur framúrskarandi Íslendingum viðurkenningu fyrir árið 2011: Magnús Geir Þórðarson í flokknum ‘störf/afrek á sviði menningar’ og Freyja Haraldsdóttir í flokknum ‘einstaklingssigrar og/eða afrek’. Freyja og Magnús eru vel að þessum viðurkenningum komin. Þau hafa bæði verið einstaklega góðar fyrirmyndir á sínum sviðum og smitað fólk með sér með áhuga sínum...
lesa meiraTOYP verðlaunaafhending 2011
Kæru félagar! Föstudaginn 10. júní kl. 18:00-20:00 mun JCI Ísland halda móttöku í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1 (Nauthólsvík). Þar verða verðlaunaðir framúrskarandi ungir Íslendingar fyrir árið 2011. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson er verndari verkefnisins og er staðfest að hann mætir og afhendir verðlaunin. Verðlaunagripirnir eru sérhannaðir af Jónasi Braga, glerlistamanni. Samstarfsaðilar JCI Íslands eru Landsbankinn...
lesa meiraÖrfréttir frá Tarragona
Hæhæ – við fengum eftirfarandi skilaboð frá landsforsetanum okkar milli 1-2 í dag (föstudaginn 3. júní): “Allt gott að frétta af okkur Íslendingunum. Jóhanna, Heiða, Viktor og Einar útskrifuðust af JCI Trainer. Þau hafa einnig sótt önnur námskeið. Loftur og Hrólfur standa núna vaktina á Nordic básnum á Tradeshow, bjóða uppá “smáhressingu” og nammi frá Íslandi. Við Viktor sitjum núna þingfund og hlustum á ýmsar áhugaverðar kynningar um starfsemi JCI í Evrópu. Í kvöld halda...
lesa meiraJCI Ísland á Facebook
Eins og sumir hafa kannski tekið eftir, þá er hægt að finna tvær “síður” á Facebook sem tilheyra JCI Íslandi: Jci Ísland (einstaklingur) og JCI Iceland (síða). Frábært framtak hjá félögum hreyfingarinnar hefur svo búið til grúppu(r) líka. En landsstjórn sem sagt hefur séð um þessar tvær síður. Frá ársbyrjun höfum við verið sammála um að best væri ef aðeins um eina svona síðu væri að ræða. Einfaldara flæði upplýsinga og hnitmiðaðra fyrir alla. Persónan “Jci Ísland” hefur...
lesa meiraAMSIS og JCI Ísland í samstarf
Á stöðufundi JCI Íslands laugardaginn 21. maí rituðu JCI Ísland og Alþjóða menntasamtökin á Íslandi (AMSIS) undir samstarfssamning. Tilgangur samningsins er að koma á samstarfi milli AMSIS og JCI vegna opnunar AMSIS á þekkingarmiðstöð fyrir ungar konur í áhættuhópum í Dakar Senegal. Í miðstöðinni mun fara fram kennsla fyrir ungar konur sem miðar að því að styrkja konurnar í átt að sjálfstæðara og betra lífi. Samstarfið byggir á gagnkvæmri virðingu og góðu upplýsingaflæði. Undir samninginn...
lesa meira

