1. FS fundur að baki – Hugurinn ber mig hálfa leið
Síðastliðinn laugardag 8. janúar 2011 fór fram 1. framkvæmdastjórnarfundur JCI Íslands. Þarna tengjast saman árin 2010 og 2011, með því að landsstjórnir, embættismenn landsstjórna og forsetar og stjórnarfólk úr aðildarfélögunum hittast, gera upp árið 2010 og ræða hvað sé framundan á árinu 2011. Árni Árnason landsforseti 2010 fór yfir starfsemina á árinu sem var að líða og þakkaði öllum þeim sem gerðu árið 2010 að frábæru ári. Starfið mótaðist að miklu leyti af 50 ára afmæli...
lesa meiraFS fundur, landsstjórnarskipti og TOYP
8. janúar 2011 verður stór dagur hjá JCI Íslandi. Hann byrjar á 1. framkvæmdastjórnarfundi JCI Íslands 2011, kl. 9:30 í sal Óháða safnaðarins Háteigsvegi 56. Mæting kl. 9:15! Framkvæmdastjórn hverju sinni skipa landsstjórn, embættismenn landsstjórnar og forsetar/formenn. Á þennan fund mæta bæði stjórnir 2010 og 2011. Árið 2010 er gert upp í fyrri hlutanum en í seinni hlutanum er horft fram á árið 2011. Viljum taka það fram að öðrum félagsmönnum sem áhuga hafa er frjálst að mæta á fundinn og...
lesa meiraKonfekt- og brjóstsykursgerð
JCI Esja heldur konfekt- og brjóstsykursgerðardag í Hellusundi sunnudaginn 12. desember kl. 13.00 í umsjón Tryggva og Laugu. Viðburðurinn er opinn öllum en nauðsynlegt er að skrá sig svo umsjónamenn geti keypt inn rétt magn af hráefni. Skráning hjá Laugu á laugalauga@gmail.com. Verð: 1.500 kr. á hvern einstakling (12-99 ára) og 500 kr. fyrir börn. Konfekt- og brjóstsykursgerð er góð og gómsæt fjölskylduskemmtun sem kemur manni í rétta jólaskapið. Og hvað er betra en að bjóða upp á heimalagað konfekt og...
lesa meiraTáknmál líkamans föstudaginn 3. desember
Táknmál líkamans er liður í fimmtudagsfræðslu JCI Íslands en verður að þessu sinni haldið á föstudegi. Föstudagskvöldið 3. desember kl. 20:00 á Thorvaldsen. Opið öllum meðan húsrúm leyfir! Látbragð og líkamstjáning getur sagt meira um okkur en orð. Er viðmælandi minn leiður? Pirraður? Glaður? Get ég eflt eigið sjálfstraust með breyttri líkamsstöðu? Get ég séð hvort sæta stelpan á barnum hafi áhuga á mér? Ef við erum meðvituð um eigin líkamstjáningu og þýðingu hennar verðum við betur í...
lesa meira2011 fréttir
Undirbúningur fyrir JCI árið 2011 er nú í fullum gangi bæði hér heima og erlendis. Heimsþing er nýafstaðið og þar var Kentaro Harada frá JCI Japan kosin heimsforseti, þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem stærsta landshreyfing JCI á heimsforseta. Kentaro starfaði sem IVP í Evrópu 2008 og EVP fyrir Asíu á þessu ári. Að venju voru kosnir fjórir EVP og 17 IVP umsjónarmaður Íslands fyrir árið 2011 er Guillaume Aubanel frá Frakklandi, Guillaume var landsforseti JCI Frakklands 2009 . ...
lesa meiraFimmtudagsfræðslan, Dagskrá haust 2010
Fimmtudagsfræðsla JCI eru stutt, stök námskeið eða fræðslukvöld sem opin eru öllum. Dagskrá fimmtudagsfræðslu JCI haustið 2010 finnur þú hér.
lesa meira

